
Myndin er tekin á Nesjavöllum þann 29. ágúst 2015
NORÐURLJÓSASPÁ.
Töluverðar Norðurljósasýningar hafa verið síðustu nætur sem verður að segjast frekar óvenjulegt í ágústmánuði.
Næsta áætlaða Norðurljósasýning er þann 2. september þegar Jörðin fer í gegn um svokallað “sektorstreymi”. Skýjahuluspáin lýtur vel út þannig að helstu sérfræðingar telja um 70% líkur á að Norðurljósin láti sjá sig.